guggasigga
10.12.2006 11:10:45 / gugga

Öll prófin búin

Jæja þá er þessi önn búin og er það mikill léttir en þá er bara að takast á við þá næstu í Janúar og þá er það sú síðasta og verður maður að taka sig aðeins á í henni og ná betri árangri. En allavega náði ég öllum prófunum og þá er bara að ná þeim á næstu önn líka, en ég var alveg viss um að ég hefði fallið í 2 fögum. Á reyndar eftir að skila inn einu verkefni sem ég geri á morgu. En núna getum við snúið okkur að jólunum en það er nú farið að minnka á jólafjafalilstanum því það er keypt ein og ein gjöf þegar farið er í búðir. En það er nú ekki mjög skemmtilegt að fara með litlu skvísurnar í búðir. En við ætlum að fara að byrja að baka jólasmákökurnar núna í vikunni. Stóru stelpurnar vilja fá piparkökuhús svo við reynum það núna í vikunni. Og síðan bökum við piparkökkur þegar stelpurnar koma heim af leikskólanum núna í vikunni en ég held að ég hafi aldrei verið svona rosalega sein með jólinn, en maður verður víst að láta skólan ganga fyrir. En læt þetta duga í bili. Kveðja Gugga Sigga

» 1 hafa sagt sína skoðun

07.12.2006 15:57:52 / gugga

Jólafrí húrra

Jæja þá fer nú að styttast í jólafrí í skólanum hjá mér og það verður ljúft, síðasta prófið á morgun og það er búið að vera að læra í allan dag og verður í allt kvöld ef maður á að ná þessari önn. En það verður nú ekkert jólafrí hjá manni því ég verð að vinna á skrifstofunni hjá Gerplu í jólafríinu svo maður eigi nú fyrir jólunum og tónleikunum í apríl en stefnan er tekin á stelpuferð til DK á tónleika með Sálinni og Stuðmönnum, við ætlum að gefa okkur það í útskriftagjöf.

En núna er Birgitta veik og er bara róleg og perlar og syngur jólalög. Annars var ég með Emblu með hjá honum Jóni lækni í gær og hún verður að koma á 2-3 vikna fresti núna því hún hefur verið að léttast og er alltaf með kvef og er núna á fyrirbyggjandi penesilini og vonandi gengur það, því ég má ekki missa svona mikið úr skólanum eftir áramót, annars eru konurnar á deildinni hennar svo góðar að leyfa henni alltaf að vera inni þegar það er frost því hún þolir það svo illa. Þær tóku það bara upp sjálfar góðar konur þar á ferð og vill ég þakka þeim vel fyrir.

Annars held ég að það sé ekkert meira að frétta héðan úr fjöllunum.

Kveðja,

 Gugga


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.11.2006 23:28:01 / gugga

Jóla jóla jóla hvað

Jæja nú fer að styttast í jólin og við stelpurnar erum farnar að undirbúa þau búnar að skreyta stofuna og setja ljós í einhverja glugga en ætli maður geymi ekki einhverja handa Unnar því honum finnst þetta svo rosalega skemmtilegt eða þannig. Birgitta er með það á hreinu að jólasveinnin gefi manni alltaf eitthvað í skóin, við vorum að ræða þetta með að jóli færi nú að fylgjast með hvort hún væri góð að fara að sofa og sagði ég henni að hún fengi ekkert frá jóla ef hún væri óþekk, hún helt það nú hún fengi þá bara kartöflu og fannst það ekkert slæmt. Er nú farin að kaupa jólagjafir en held að ég hafi aldrei verið svona rosalega sein áður í þeim málum.

Er að byrja í jólaprófunum á morgun og er þá stærðfræði og hef ég verið að fara í smá aðstoð svo maður nái nú þessu og ég held það takist bara. svo eru tvö próf í næstu viku og þá er ég komin í jólafrí í skólanum en ég verð nú að vinna á fullu í jólafríinu enda veitir ekki af að fá sér smá pening því það er farið að segja til sýn þessi skólaganga.

Svo við víkjum aftur að jólunum. Hér eru sungin jólalög allan daginn og þá er vinsælast jólasveinar ganga um gólf og er mikið rætt um það hvort það sé kanna sem stendur upp á stól eða hvort ég standi og kanna nú er komið að ykkur að hugsa málið en hér á bæ syngjum við jólasveinar ganga um gólf með gildan staf í hendi og móðir þeirra sópar gólf ........ svo kemur upp á stól stend ég og kanna níu nóttum fyrir jól en hættum nú þessu bulli og förum að hugsa um börnin sem eru að gráta inn í herbergi.

kveðja Gugga jólakerling


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.11.2006 19:20:44 / gugga

smá smá

1. Miðnafnið þitt:
2. Aldur:
3. Single or Taken:
4. Uppáhalds bíómynd:
5. Uppáhalds lag:
6. Uppáhaldshljómsveit:
7. Dirty or Clean:
8. Tattoo eða göt:
9. Þekkjumst við persónulega?
10. Hver er tilgangurinn með lífinu?
11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?
12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?
13. Besta minningin þín um okkur?
14. Myndir þú gefa mér nýra?
15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:
16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veikur?
17. Getum við hist og bakað köku?
18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?
20. Finnst þér ég góð manneskja?
21. Myndir þú kerya með mér hringinn í kringum landið?
22. Finnst þér ég aðlaðandi?
23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?
24. Í hverju sefuru?
25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?
27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?
28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?

Tók þetta á síðunni hans Alla þar sem ég svaraði spurningum

Verð að fara að gefa mér tíma til að blogga eitthvað hér mig vantar nokkra tíma í sólahringinn. Er farin að vinna með skólanum á skrifstofunni hjá Gerplu er líka að skúra í efnalauginni og síðan er ég að þjálfa á laugardagsmorgnum líka í Gerplu svo það er nóg að gera á stóru heimili.

Núna er sú yngsta að væla svo ég hætti þessu og fer að steikja hamborgara handa skrílnum því núna fer Hjördís að koma heim og ég að fara í saumó.

kveðja Gugga Sigga


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.10.2006 15:27:00 / gugga

Komin tími á nýja færslu

Ætla að skrifa hér smá hef nú ekki mikið að segja ekkert merkilegt að gerast hjá gamalli kerlingu nema stunda skólan vinna og vinna og hugsa um öll börnin sem er nú ekkert smá. Það er eiginlega ekki mikill tími afgangs þegar þetta daglega er búið. En svona er venjulegur dagur hjá mér, vakna kl 6:30 vekja liðið í skólan og vinnuna fara á leikskólan með gengið síðan fara í skólan og svo í ræktina eftir skóla og síðan er brent heim að læra og laga til og þá er komin tími til að sækja stelpurnar á leikskólan, þá er farið að skúra og síðan þegar allir ættu að eiga frí á laugardegi þá mæti ég í vinnu og fer að þjálfa fullt af litlum gríslingum í Gerplu, og á fimmtudagskvöldum og á sunnudögum fer ég sjálf á æfigu hjá Gerplu, en ég á svo frábærar stelpur að þær passa þær litlu fyrir mig svo ég geti unnið og æft. Annars var verið að bjóða okkur í afmæli í byrjun nóv. það er víst betra að láta okkur vita með góðum fyrirvara því það getur tekið tíma að koma öllum fyrir yfir helgi því þetta afmæli er í Vestmannaeyjum hjá honum Hjalla en hann er að verða fertugur karlinn. Jæja sú stutta er að pissa á sig svo ég læt þetta vera nóg í bili skrifa svo aftur eftir svona mánuð það virðist vera minn stíll.

kveðja Gugga


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.10.2006 15:26:59 / gugga

Komin tími á nýja færslu

Ætla að skrifa hér smá hef nú ekki mikið að segja ekkert merkilegt að gerast hjá gamalli kerlingu nema stunda skólan vinna og vinna og hugsa um öll börnin sem er nú ekkert smá. Það er eiginlega ekki mikill tími afgangs þegar þetta daglega er búið. En svona er venjulegur dagur hjá mér, vakna kl 6:30 vekja liðið í skólan og vinnuna fara á leikskólan með gengið síðan fara í skólan og svo í ræktina eftir skóla og síðan er brent heim að læra og laga til og þá er komin tími til að sækja stelpurnar á leikskólan, þá er farið að skúra og síðan þegar allir ættu að eiga frí á laugardegi þá mæti ég í vinnu og fer að þjálfa fullt af litlum gríslingum í Gerplu, og á fimmtudagskvöldum og á sunnudögum fer ég sjálf á æfigu hjá Gerplu, en ég á svo frábærar stelpur að þær passa þær litlu fyrir mig svo ég geti unnið og æft. Annars var verið að bjóða okkur í afmæli í byrjun nóv. það er víst betra að láta okkur vita með góðum fyrirvara því það getur tekið tíma að koma öllum fyrir yfir helgi því þetta afmæli er í Vestmannaeyjum hjá honum Hjalla en hann er að verða fertugur karlinn. Jæja sú stutta er að pissa á sig svo ég læt þetta vera nóg í bili skrifa svo aftur eftir svona mánuð það virðist vera minn stíll.

kveðja Gugga


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.10.2006 15:26:13 / gugga

Komin tími á nýja færslu

Ætla að skrifa hér smá hef nú ekki mikið að segja ekkert merkilegt að gerast hjá gamalli kerlingu nema stunda skólan vinna og vinna og hugsa um öll börnin sem er nú ekkert smá. Það er eiginlega ekki mikill tími afgangs þegar þetta daglega er búið. En svona er venjulegur dagur hjá mér, vakna kl 6:30 vekja liðið í skólan og vinnuna fara á leikskólan með gengið síðan fara í skólan og svo í ræktina eftir skóla og síðan er brent heim að læra og laga til og þá er komin tími til að sækja stelpurnar á leikskólan, þá er farið að skúra og síðan þegar allir ættu að eiga frí á laugardegi þá mæti ég í vinnu og fer að þjálfa fullt af litlum gríslingum í Gerplu, og á fimmtudagskvöldum og á sunnudögum fer ég sjálf á æfigu hjá Gerplu, en ég á svo frábærar stelpur að þær passa þær litlu fyrir mig svo ég geti unnið og æft. Annars var verið að bjóða okkur í afmæli í byrjun nóv. það er víst betra að láta okkur vita með góðum fyrirvara því það getur tekið tíma að koma öllum fyrir yfir helgi því þetta afmæli er í Vestmannaeyjum hjá honum Hjalla en hann er að verða fertugur karlinn. Jæja sú stutta er að pissa á sig svo ég læt þetta vera nóg í bili skrifa svo aftur eftir svona mánuð það virðist vera minn stíll.

kveðja Gugga


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.08.2006 16:25:56 / gugga

Skólinn byrjaður aftur

Jæja þá er skólinn byrjaður afur hjá öllum á heimilinu sem stunda skóla. Það er bara fínt að vera byrjuð aftur, Unni Örnu finnst bara gaman í skólanum hún lennti með Kristíni Hörpu í dönsku og eru þær víst mjög duglegar þar eða þannig.

Við gömlu skelltum okkur í til DK með 3 elstu stelpurnar og Söndru vinkonu hennar Unnar og vorum þar í 4 daga og var það mjög fínt.

Svo keypti ég mér fellihýsi og seldi tjaldvagnin allt sama daginn og erum við aðeins búin að prófa fellihýsið og er það mikil munur ef maður miðar við að vera í tjaldvagninum er að hugsa um að vera bara á skerinu kalda næsta sumar og ferðast um með fína húsið okkar eða bara skella sér í stóra ferð og keyra um DK ekki slæm hugmynd það.

Svo er ég farin að skúra með skólanum hjá efnalauginni Björg í Mjóddinni og er það bara fínt, svo var ég að spyrjast fyrir um vinnu hjá Gerplu er með svo mörg iðgjöld þar og það væri ekki verra að geta unnið upp í þau svo er bara að sjá hvort það gangi vona það er ekki að sjá að ég hafi efni á að borga öll þessi iðgjöld en litlu stelpurnar eru að fara líka í fimleika og svo ég og kannski Unnur Arna.

Embla Rún er komin með mjólkuróþolið aftur og þarf að lesa vel á allar pakkningar og er það frekar leiðinlegt og svo þarf maður að baka þegar við förum í afmæli til að taka með okkur svo skvísan fái eitthvað að borða í afmælinu auminginn litli.

Man ekki eftir neinu meira í bili en ætla að fara að taka mig á í þessu bloggi.

Jú núna man ég hún Helga var að biðja mig um að koma með sér til Minniapolis núna í nóvember og veit ég ekki hvað ég á að gera sjá til hvort ég fái vinnuna eða ekki hef varla efni á því að fara út í þriðja skiptið á þessu ári.

kveðja,

Gugga Sigga


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.07.2006 13:37:09 / gugga

Komin heim

Jæja þá erum við mæðgur komnar heim eftir vel heppnaða ferð til Belgíu. Við vorum mjög heppin með veður  og sýningarnar hjá stelpunnum heppnuðust vel. Við lenntum í því að týna bakpokanum okkar á leiðinni heim en í honum var vídeovelin og linsan á nýju myndavelinni en við vorum svo heppin að hún fannst í rútunni og hún Birna hjá fimleikasambandinu fór með leigubíl og náði í pokan okkar og viljum við þakka henni fyrir.

Við komum heim á föstudaginn og fórum nánast beint til eyja í afmæli til Kjells en það var haldið upp á það á laugardagskvöldið og var það svaka fjör.

Núna erum við að hugsa um að fara i sveitina og vera þar fram á föstudag allavega ekki vitað með framhaldið.

Skrifa aftur seinna

Gugga Sigga.


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.07.2006 23:00:19 / gugga

Ferðin ekki byrjuð og vesen komið upp

Það var hringt í mig áðan og mér tilkynnt það að foreldranir voru bókaðir á öðrum degi en börnin.:(:klikk::evil: En við ætlum að fara upp á völl á morgun og gá hvort við fáum ekki breytingu á miðunum, fréttum að það væri laus sæti í velinni. Hvernig endar þessi ferð það eru byrjuð vesen áður en við förum. Það var samt heppni að ein mamma fór að skoða miðan sinn og sá að dagsettninginn passaði ekki og lét fimleikasambandið vita og þeir hringdu síðan í hina foreldrana sem voru ekkert farnir að skoða miðana sína kæruleysi. En allavega vonum við að þetta reddist nú.

Kveðja Gugga Sigga


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.07.2006 11:37:42 / gugga

Jæja þá leggjum við land undir fót

Jæja þá erum við mæðgur að klára að taka okkur til og leggjum við í hann kl 4:15 en þá er mæting í Gerplu og fer svo hópurinn allur saman í rútu út á flugvöll. En í kvöld er generalprufa hjá hópnum til að sýna ættingjum og vinum hvað þetta verður fín sýning hjá þeim.

Hjördís er búin að ráða sig í vinnu hjá Nínu og er hún að passa litlu skvísuna og síðan sækir hún Ísis á leikskólan en frá og með næstu viku verður hún með Ísis en Aris fer til mömmu í pass.

Við fórum í útlilegu um síðustu helgi og gáfumst við upp eftir eina nótt en það hefur bara einu sinni áður komið fyrir að við gefumst upp á veðrinu. En rigninginn var gífuleg á Höfn svo við pökkuðum bara saman og fórum upp í bústað til mömmu og pabba, og höfðum það fínt þar komum svo í bæinn á sunnudagskvöld.

Pabbi og mamma eru komin til landsins og eru á leiðinni í bæinn og ætlum við að reyna að hitta þau í kvöld áður en við leggjum okkur ef það verður hægt fyrir spenning(spurning hvort er spenntari mamman eða dóttirinn) en allavega kvíður mömmunni fyrir að vera aðskilin frá skrílnum sínum svona lengi en við hjónakornin ætlum að fara beint til eyja þegar ég lendi föstud. 14. júli svo ég sé stelpurna lítið fyrr en þann 16 aumingja þau.

en látum þetta nú duga í bili.

Kveðja Gugga Sigga

p.s. skrifa ekkert fyrr en ég kem heim.


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.06.2006 17:27:43 / gugga

Hvað þekki þú mig vel

Jæja ágætu lesendur þ.e.a.s Alli og Nína nú legg ég fyrir ykkur spurningalista og sé hvað þið þekkið mig vel. Gangi ykkur vel :lol:.

1. Hver ert þú?
2. Hver er ég?
3. Hvar hittumst við fyrst og hvernig?
4. Hvernig leist þér á mig þá?
5. Hvernig líst þér á mig núna?
6. Lýstu mér í einu orði:
7. Gefðu mér gælunafn, og segðu mér afhverju þú valdir það:
8. Hvað minnir þig á mig?
9. Hversu vel þekkir þú mig?
10. Hvar og hvenær sástu mig síðast?
11. Í hvaða stjörnumerki er ég, eða hvenær á ég afmæli?
12. Hvað meikar bara sens fyrir mig og þig? (finnst þetta reyndar vera hallærislega orðuð spurning!)
14. Hver er uppáhalds sjónvarpsþátturinn minn?
15. En bíómynd?
16. Á ég systkin? Ef svo er, nafngreindu þau:
17. Á ég kærasta? Ef svo er, hver er það?
18. Trúi ég á Guð?
19. Hvernig myndir þú lýsa mér fyrir öðrum?
20. Tókstu eftir því að það vantar nr. 13?
21. Ætlarðu að láta þetta á þitt blogg svo ég geti skrifað um þig?

Semsagt einskis nýtt bull................en hvað um það.....

Kveðja Gugga Sigga




» 6 hafa sagt sína skoðun

26.06.2006 23:51:09 / gugga

Þá er fyrst vinnuvika vinnukvennana lokið

Þá er þessi fyrstu vinnuviku lokið hjá stelpunum og það gekk bara alveg ljómandi vel þær klikkuðu bara á einum degi.

Annars er búið að vera frekar rólegt hjá okkur, Stebbi og co ásamt Kristíni og Sigrúni komu og grilluðu með okkur á laugardagskvöldið, síðan á sunnudaginn fórum við niður á tjörn að gefa öndunum brauð. Annars er þetta bara búin að vera hin rólegast helgi. Annars var hún Helga skólasystir, núna tala ég eins og ég sé lítil skólastelpa, að koma austur á Höfn á humarhátið og erum við að hugsa um að fara ef veðrið verður skemmtilegt nennum ekki að fara til að vera í rigningu nei takk. Ég læt ykkur vita hvort við förum austur eða ekki annars geti þið líka fylgst bara með veðrinu og þá sjái þið hvernig veðri er spáð:).

Kveð í bili,

Gugga Sigga með sól í hjarta(því ekki skín hún úti)8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.06.2006 14:12:02 / gugga

Vinnukonur það er málið

Jæja þetta með vinnukonurnar virkar sko mega vel , það er alltaf hreint og fínt núna á heimilinnu. En Hjördís spurði nú um daginn, mamma ertu ekki alltaf þreytt! nú afhverju spyrðu af því svaraði ég, nú þú vaknar alltaf svo snemma og ert alltaf að taka til.(þennan morgun vaknaði Hjördís kl 8 og þurfti síðan að sjá um að hafa eldhúsið hreint). En allavega mæli ég með þessari aðferð hún virkar allavega svona fyrstu vikunna :).  Annars er ekki mikið af okkur að frétta. Það styttist í Belgíuferðina okkar Stefaníu við vorum að kaupa gjaldeyri fyrir hana í dag og síðan vorum við að sníkja boli eða handklæði fyrir hópinn frá spron. Annars var ég að kaupa mér þessa líka flottu myndavel þetta er svona alvöru og núna verður farið að taka myndir á fullu og svo þarf ég ekki að taka tölvuna með mér út því ég kem um 500 myndum á kortið. Svo núna er bara að fara að æfa sig í myndatökum. Held ég hafi ekkert meira að segja.

Jú annars erum við hjónakornin að hugsa um að fara til eyja helgina 14-16. júlí í afmæli til Kjell en hann verður 75 ára þessa helgi og ætlar að vera á Íslandi svo þetta verður í fyrsta skipti í 14 ár sem við förum tvö ein í útilegu og ætla ég að reyna að sníkja fellihýsið af mömmu og pabba til að prófa.

En nóg í bili af þessu rugli í mér

Gugga Sigga

Ég vill óska Nínu litlu systir og Unni Örnu litlu stelpunni minni til hamingju með að vera komnar í FB. TIL LUKKU STELPUR MÍNAR.


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.06.2006 14:04:25 / gugga

Komin með vinnukonur!!!!

Jæja þá er ég búin að ráða vinnukonur í vinnu hjá mér. Já ég er að segja satt, veit allir frekar hissa enda er ég ekki von að biðja um hjálp en þetta er komið nóg af striti núna og það er best að virkja þessa stelpur eitthvað sem búa hér á heimilinu. Ég er sem sagt að ráða elstu stelpurnar í vinnu þær eiga að þrífa heima hjá sér og fá vasapening í staðinn. Ég skipti semsagt íbúðinni í þrjá parta (ekki að þetta sé stór íbúð) og hver stelpa fær að sjá um að þrífa hann í viku i senn og fá fyrir þetta 1000 kr. á viku og er þær verða duglegar að halda sínu herbergi líka hreinu þá fá þær extra fyrir það. Er farin að sjá fram á róleg kvöld :lol:.

Við nenntum ekki að fara í bæinn á 17. júni en staðinn skelltum við okkur austur fyrir fjall og fórum í dýragarðinn í Slakka og það þótti litlu stelpunum skemmtilegt. Þeim fannst nú úti dóti meira spennandi heldur en dýrin. Emblu fannst þau fín í fjarlægð en Birgitta var alveg til í að fara og klappa þeim. Unnur Arna var nú spenntust af þeim og Stefanía líka held ég sé að ala upp bóndakonur, sem er bara fínt þá er hægt að senda þær litlu í sveit til þeirra og við gömlu getum haft það rólegt í ellinni.

Er komin aftur í skólan svo fjörið byrjar hjá okkur mæðgunum núna í ágúst.

Er ekki með fleirri fréttir fyrir ykkur í bili en læt vita af okkur hér annað slagið.

Kveðja Gugga Sigga


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4